Sumarstörf í vöruhúsi
Ölgerðin rekur öflugt vöruhús þar sem unnið er á tvískiptum vöktum frá 7:00-15:00/15:00-23:00, dagvöktum frá 08:00-16:00 og miðvöktum frá 13-23 (mánudaga til fimmtudaga)
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Móttaka á vörum
- Lestun og losun vörubíla
- Önnur tilfallandi störf sem tilheyra í stóru vöruhúsi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hreint sakavottorð
- Geta til að vinna undir álagi
- Þjónustulund, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni, samviskusemi og jákvæðni
- Bílpróf er skilyrði, lyftarapróf er kostur
Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri og geti hafið störf í byrjun maí og unnið fram í miðjan ágúst
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.