Vaka manages COLLAB

18. July 2025

Vaka Njálsdóttir has been hired by Ölgerðin as the brand manager for COLLAB. Vaka previously worked at Nova in the marketing department and product development, where she worked on a variety of projects related to marketing, digital development, and product offerings.

Þar áður var hún hjá Sony Music í Danmörku, þar sem hún sinnti ráðgjöf við útgáfu og markaðssetningu á tónlist.  Vaka er með BSc gráðu í hagfræði og hefur jafnframt stundað nám í ljósmyndun.

Velgengni COLLAB hefur verið ævintýraleg frá því að drykkurinn kom á markað fyrir aðeins sex árum síðan og óhætt að segja að vörumerkið hafi slegið í gegn hjá þjóðinni.  Síðustu misseri hefur Ölgerðin flutt COLLAB á erlenda markaði og hafa viðtökur þar verið góðar bæði í Danmörku og nú síðast Þýskalandi.

Ég er spennt fyrir að takast á við nýtt hlutverk og er þakklát því trausti mér mér er sýnt með því að fela mér þetta verðmæta vörumerki. Ég hef trú á að COLLAB eigi enn mikið inni, bæði hér heima og erlendis, vegna sérkenna drykkjarins þegar kemur að sjálfbærni og beinni tengingu við íslenska náttúru og menningu.  Ég hlakka til að vinna að enn glæstari framtíð COLLAB með öflugu teymi hérna hjá Ölgerðinni,“ segir Vaka.

Innan Ölgerðarinnar er mikil vöruþróun og markaðsstarfið er kröftugt. Að fá Vöku með okkur í lið til að vinna með eitt okkar sterkasta vörumerki er frábært. Hún er öflug viðbót í sterkt teymi vörumerkjastjóra Ölgerðarinnar,“ segir Elísabet Austmann, markaðsstjóri óáfengra drykkja hjá Ölgerðinni.