Aftur í öll störf

Vélstjóri óskast á framleiðslusvið

Við erum að leita af duglegri manneskju með brennandi áhuga á vélbúnaði og sjálfvirkni. Manneskju sem sýnir frumkvæði og getur tekið sjálfstæðar ákvarðanir.  Erum að bjóða fjölbreytt starf þar sem allir þættir vélstjóranámsins eru nýttir.

Vinnutíminn er frá 7:30-15:30 en ca fjórða hver vika er fjögra daga kvöldvaktarvika.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Viðhald og eftirlit á framleiðslubúnaði fyrirtækisins
  • Uppsetning á nýjum framleiðslutækjum og koma þeim í rekstur.
  • Smíðavinna, ryðfrítt stál.
  • Ýmis tilfallandi verk tengd véla- og tækjabúnaði Ölgerðarinnar.

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

 

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.

Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík


Umsóknarfrestur frá:

05. janúar 2026

Umsóknarfrestur til:

26. janúar 2026